Berglind
Thursday, October 28, 2004
Tuesday, October 26, 2004
Nýtt blogg?!?
Er ad íhuga ad yfirgefa blogger og fá mér blog.central.is ?? Einhver mótmæli? Alltaf gaman ad breyta til nebbla en vid sjáum bara til... bara pæling!
Saturday, October 23, 2004
Tungumálaördugleikar
Karina er ný hér. Hún er norsk. Um daginn sitjum vid Hildurnar og hún inni í tölvustofu.
Karina er i midju kafi ad skrifa inn e-a slód á netid, snýr sér svo ad okkur og segir vid okkur e-d sem ad okkur mati hljómadi svona: "Blablabla hvordan blablabla at blablabla..."
Og hummm... vid Gísladóttir lásum svona úr thessum ordum: "Vitidi hvernig madur gerir @ merkid?"
Svo ad ég svara "Control Alt og svo 2".
Hún verdur hálfkvumsa á svipinn svo ad Gísladóttir slædar sér yfir ad tölvunni hennar og gerir @ merkid og eftir nokkrar sekúndur segir Karina "Uuuuu, you´re with me in football right?!! Hvordan gik det i dag?"
Hehe, vid Hildurnar hlógum.
Karina greyid sá samtalid örugglega svona fyrir sér:
K: "Hvernig var í fótolta í dag?"
BG: "Control Alt 2"
Ég hélt vid skildum nú norsku betur en thetta, herregud...
Friday, October 22, 2004
Börn eru yndi!!
Í morgun kom 3. og sídasti hópur leikskólabarna í heimsókn til okkar Marie og Stine og thau voru alveg jafnfrábær og hinir tveir hóparnir, vorum med thau í thrautabraut og air-track (hoppudýna!) og thau skemmtu sér konunglega. Frá 11-15 vorum vid svo med 6 stráka 12-14ára sem eiga vid félagsleg vandamál ad strída og their voru algjört ædi líka, toppkrakkar. Fórum med thá í spinning, klifur og powersport thrautabraut og allt gekk rosavel.
Átti nokkur ansi skemmtileg samtöl vid leikskólabörnin... á thridjudaginn sagdi einn strákurinn vid mig eftir ad hafa verid hér í svona klukkutíma: "Hvor kommer du fra?" og ég svara tví og thá segir hann "Det kan jeg godt høre" :) Vid spjölludum svo pínu um Ísland og hann var voda áhugasamur um mig... Svo var önnur stelpan sem átti erfitt med ad skilja af hverju ég bjó hér í skólanum "Hvor sover du så? Her i hallen på madrassen?" Skemmtilegt thad.
Jæja, matur...
Monday, October 18, 2004
Bara svona örstutt kvedja...
...komnir 6 nýir nemendur svo ad vid vorum i svona fælles aktivitetum í dag og í gær - sjádu bara pabbi, farin ad sletta á dönsku :) Eftir hádegi í dag byrjadi svo nýtt skema, ný liniefög og valfög. Ég verd áfram í aktivitetsleder en svo í fótbolta í stad adventure, mun sakna adventure thó *snökt*
Fótboltinn byrjar med látum... á morgun verdur leikur vid hvorki meira né minna en grænlenska landslidid, jú takk! Reyndar bara strákarnir sem spila en samt mikid stud og gaman ad geta thess ad thad eru 4 Íslendingar í byrjunarlidinu, 3 Svíar, 3 Danir og 1 Kani og okkur thótti tví réttmætt ad krefjast thess ad íslenski thjódsöngurinn yrdi spiladur en thad verdur víst ekki...
Thad er svoköllud pratik uge í Aktivitetsleder thessa vikuna svo ad all flestir eru einhvers stadar í burtu, t.d. ad hjálpa til í feriecenter eda e-u thess háttar og svo eru norsku píurnar ad kenna leikfimi heima í Noregi í gömlu skólunum sínum, mikid hefdi ég verid til í ad fara í Mýró eda Való ad kenna leikfimi eda jafnvel MR! Til stód ad ég færi á barnadeild á spítala en thad gekk tvi midur ekki upp en í stadinn erum vid 3 hér í skólanum og fáum heimsóknir hédan og thadan - á morgun og föstudag koma leikskólabörn, oh ég hlakka til :) og á fimmtudag menntaskólanemendur og svo átta 10 - 14 ára piltar á föstudaginn! Gengur vonandi vel.
Fótboltaseasoninu er lokid (munum reyndar æfa áfram) og gengu leikirnir ansi ansi slapplega en thad var thó gaman og ég verd ad vera sátt, afrekadi a.m.k. ad vera 2x madur leiksins - segir thad kannski meira um getu lidsins eller?!? :) Vid bordudum svo saman á laugardaginn og héldum partý, mikid stud, ansi gaman ad spila pictionary á dönsku!!
Annars var ég ad koma af floorballæfingu, mun skemmtilegra en sídast og leikur a laugardaginn :/ Veit svosem ekki hversu mikid madur fær ad spila en thad verdur thó stud :)
Thetta vard bara alls ekkert stutt, hummmmm...
Friday, October 15, 2004
"Ad gera eitthvad nýtt á hverjum degi"
Komnar fleiri myndir loksins! Djammmyndir frá Álaborg og svo myndir úr kajakferdinni okkar!!
Annars er themavikunni brádum ad ljúka, morgunskokk í morgun, er svo núna rétt brádum á leid í freestyle, sjáum hvernig thad fer :) og svo nudd eftir hádegi og í kvöld er svo vínsmökkun, matur og partý. Er reyndar ad fara ad keppa á morgun svo thad verdur rólegt kvöld býst ég vid.
"Ad gera eitthvad nýtt á hverjum degi" er hid fínasta mottó hérna - og reyndar alltaf! Held barasta ad ég geti sagst hafa gert eitthvad nýtt á hverjum degi... t.e. ef ég má stundum dreifa vidburdaríkum degi yfir á nokkra daga - skiljanlegt?!?
Til ad mynda á mánudaginn gerdi ég margt nýtt:
1. Gekk á glerbrotum
2. Spúadi svona sirkuseldi - segir madur spúadi, hummm...
3. Braut múrstein med höndinni
og sídast en ekki síst...
4. Fór á bandíæfingu/floorball/innebandi ;)
Æfingin var nú frekar létt og ekki gátu thær nú mikid... ég gat reyndar enn minna en ég held barasta ad ég prófi adra æfingu, why not?!?!!
Komid nóg.
Wednesday, October 13, 2004
"Hid góda líf"
Thad er nebblega thad... skemmtilegt hvernig jafnvel thad sem stefnir ekki í neitt spennandi hérna verdur svo bara sérdeilis prýdilegt!
Fengum verkefni á mánudaginn sem var einfalt:
SKÓLANUM VERDUR LOKAD FRÁ KL.10 Í FYRRAMÁLID TIL KL.16 Á MIDVIKUDAG OG ÚT MED YKKUR ÖLL! - 30 TÍMAR, JÚ TAKK! Okkur var skipt í 4 manna hópa og fengum 50kr. danskar á mann og svo bara have fun!
Thetta hljómadi nú bara helvíti spennandi thví thad fyrsta sem mér datt í hug var e-d eins og puttaferdalag til thýskalands... thad fannst hópnum nú e-d klikkad og kom í ljós sídar ad adrir Íslendingar hefdu líka viljad gera e-d svona en höfdu fengid svipud vidbrögd í sínum hópum! Minn hópur var thó til í ad tékka ýmislegt, athugudum m.a. verd á flugmida til London en nei ekki flogid út á thridjudag - thad var thad eina sem stoppadi okkur, hehemmm... svo vorum vid nánast ákvedin ad skella okkur til Gautaborgar og gista vonandi hjá vini Coffe en svo hugsudum vid æ... thad verdur bara peningaeydsla og hangs í midbæ Gautaborgar.
Ákvádum loks ad skella okkur í hjólatúr til Tranum heimabæjar Sanne, Raufarhöfn Danmerkur - afsakid Raufarhafnarbúar... algjört krummaskud thar sem flestir sem vid hittum voru í vodasætum hvítum gúmmítúttum ;)
Thid haldid kannski ad Tranum sé rétt hjá, neinei, hjóludum marathon sirka sem var svosem ekkert rosalegt mál, reyndar 2 svona heldur latar í grúppunni en allt gekk nú ok! Planid var svo ekki komid lengra en thad ad vid ætludu, ad fá lánad 2 MANNA tjald hjá systur Sanne og sofa e-s stadar og gera e-d!!!
Systur Sanne fannst vid e-d djörf ad ætla ad sofa úti í Október og stakk upp á thví ad Sanne spjalladi vid bossinn sinn - hún vann jú á tjaldsvædi á sumrin sem var um 6km frá Tranum og júju viti menn, fengum lánada litla sæta Hyttu, lítid mál og mikid urdum vid fegin...
Og nú rættist aldeilis úr ferdinni... ekki ad mér hafi leidst ádur, hópurinn virtist bara ekkert súperhress rétt í fyrstu og lítil ævintýramennska í lidinu!!
Í Tranum var 200kr. okkar eytt í braud, álegg, djús og kassa af bjór - hvad annad áttum vid ad gera voru rök camillu og coffe fyrir theim kaupum :) Eftir mikid bögl vid ad pakka gódgætinu í töskurnar okkar, svefnpokana og ég veit ekki hvad og hvad átti ad halda út á campingpladsid... stoppudum á vodakósí leikvelli í skóginum og komumst svo á leidarenda thar sem thessi líka fína hytta beid okkar... til ad gera langa sögu stutta eyddum vid tímanum í eftirfarandi:
spila
borda
drekka bjór
minigolf
spjalla vid kettina
drekka bjor
spila
spila
drekka bjor
nat-petonque (petonque er nánast eins og boccia og "nat" af tví ad vid skelltum okkur
út theger komid var kolnidarmyrkur og spiludum med einu litlu
hjólaljósi, mikid stud)
spila meir
læra smá sænsku - thegar coffe sagdi t.d. "ég vedja tveimur sopum" hljómadi thad
sem "ég vedja 2 pungum" í eyrum camillu og Sanne eda var thad "2
eistum" hummm... theim var skemmt.
kenna svíanum okkar smá dönsku
sms-a hinum hópunum
spila
spila
spila - komumst ad tvi ad coffe kann ekki ad telja
drekka bjor
sofa
Dagurinn í dag fór svo í heimferd, thad var einróma samthykkt ad hjóla ekki alla leid heim... hjóludum tví til Brovst (um 11km) med stoppi í útsýnisturninum í Tranum, urdum jú ad skoda thad sem hægt var ad skoda! Í Brovst var svo planid ad taka rútu til Álaborgar sem tókst eftir 2 tíma bid... thad var ekki fyrr en 3.bíllinn kom ad vid gátum tekid hjólin med en aftur komu spilin ad godum notum vid ad stytta tímann... í Álaborg tókum vid svo lestina HEIM TIL BRØNDERSLEV, ahhh hvad thad var nú gott ad koma heim ;)
Sem sagt, aldeilis prýdileg ferd... hver hópur á svo ad vera med e-s konar kynningu á ævintýrum sínum, nokkrir í kvöld, rest á morgun!
Og já, thema vikunnar er "Hid góda líf"
